Ok ég gefst upp það eru komnar yfir 100 heimsóknir í dag og
EKKERT já ég endurtek EKKERT komment! En ég ætla samt að blogga þó
svo að þið séuð letidýr, að undanskildum þeim sem að kommentuðu á
fyrra bloggið mitt, takk fyrir það! (það er nóg að segja bara
hæ)
EN ég hef nú ekkert mikið að segja það er ekki margt sem að ég
hef verið að brallarast undanfarið því að tími minn hefur farið í
þetta síðustu daga og gerir örugglega næstu daga og vikur:
1: Ala upp son minn, gefa honum að borða, klæða hann og svæfa
hann, baða hann og fara í okkar daglegu göngutúra, og auðvitað
leika við hann, mér finnst fátt skemmtilegra hann er að uppgötva
svo margt núna!
2: Sinna manninum mínum, gefa honum að borða og margt annað
skemmtilegt
(förum ekkert nánar út í þá sálma)
3: Gefa hundinum og viðra hann.
4: Elda og þvo þvott (er það ekki tilgangurinn í því að vera
húsmóðir)
5: þrífa, bendi á nr 4.
6. Kíkja á netið annað slagið og blogga kannski.
7: Mæta á heimaleiki í fótbolta hjá manninum með soninn.
8: Slappa af fyrir framan imbann (sjónvarpsglápið hefur minnkað
til muna)
9: reyna að losna við síðustu aukakílóin (gengur ekkert alltof
vel)
10: Sofa, fæ mun meiri svefn núna en fyrir 2 mánuðum!
Já ég held það nú bara það er ekkert svaðalegt að gerast hjá
okkur þessa dagana og þegar maður fer út á meðal fólks að þá talar
maður bara um soninn og hvað maður er stolt af honum! (allir
ábyggilega komnir með ógeð á því og mér er alveg sama um það hann
er ÆÐI!) En annars höfum við litla familían það fínt þessa
dagana og ætla ég að láta þetta gott heita, kveð í bili
Rannslan